þriðjudagur, 29. júlí 2008

Roadtrip

Stukkum til Þýskalands, til að kaupa bíl. ÉG og sigrún flugum til Frankfrt og tókum svo lest til Essen.
Þar sem við hittum Svenna sem að flaug til Eindhofen og keyrði til Essen.
Við skemmtum okkur konunglega og ævintýrin voru mikil. Fyrsti bíllinn ekki það sem við vildum annar bíllinn læstur inni en þriðji bíllin var sá sem við tókum heim.
Heimferðin var svakaleg, lögðum ekki af stað til Hollands fyrr en um 18:00 og komum loksins til $&%/&/( bæjarins sem að við vildum skila bílnum í en þá kom í ljós að það var ekki hægt.
ÞAnnig að endanleg stefna var tekin á Eindhofen sem var klukkutíma í hina áttina. :S Loksins þegar við skiluðum bílnum í Eindhofen. þurftum við að leggja af stað til Bergamo. Hmmm GPS tækið sagði að við yrðum komin þangað klukkan 07:00 um morguninn.
EKki allveg málið, þannig að við ákváðum að stoppa á leiðinni. Komum loks til Basel í Sviss. Stoppuðum þar og leituðum að hóteli..... MJÖG lengi.
of Svenninn minn fann loksins hótel. Eftir mjög skrýtna hótelvinnukalla í engum skyrtum og Hiltonhótel sem kosta mánaðarlaun.
Morguninn eftir fengum við morgunmat og hann var svoooooo góður.

Svo var keyrt áfram. Á leiðinni datt okkur í hug að stoppa í Interlaken. Þar er nebblega hægt að fara í PARAGLIDING. VIð gerðum það!!!!!!!!!!!!
ÞAð var svoooo gaman og svooo skemmtilegt! Stukkum framm af brekku í fallhlíf og svifum svo niður ég fór í hringi og kollhnísa, stelpan sem að flaug með mig er með þessa síðu hérna. Hún var svo hress og kúl. Spurði hvort mér fyndist þetta skemmtilegt og ég sagði auðvitað já! ÞAnnig að hún fór að gera miklu meira skemmtilegt, fleiri snúninga og fleiri kollhnísa. ÞAð var svoooo gaman!

Svo löbbuðum bið göngugötuna og borðuðum svissneskan mat. Loksins löggðum við af stað heim og þá keyrði Sigrún uppí alpana og ég þaðan til Ítalíu. Hraðbrautir og bílar á milljón :S

Loksins komum við heim með nýja burrann og erum voða glöð hérna í BERJAMÓ :)

1 comments:

Guðrún sagði...

Trúi ekki að þú hafir ekki skrifað hvernig bíl þið keyptuð!!! ;) Vil vita!